Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. desember 2017 19:07
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Everton og Swansea: Gylfi byrjar gegn gömlu félögunum
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson fær sína fyrrum liðsfélaga í heimsókn í eina leik kvöldsins í enska boltanum.

Gylfi er í byrjunarliði Everton sem er búið að næla sér í sjö stig í þremur leikjum undir stjórn Sam Allardyce.

Svönunum gengur ansi illa án Gylfa innanborðs og verma þeir botnsætið, með aðeins 9 mörk skoruð í 17 leikjum.

Gylfi byrjar líklega á vinstri kanti hjá Everton, með Wayne Rooney í holunni og Aaron Lennon hægra megin. Dominic Calvert-Lewin er líklega fremstur.

Wilfred Bony er fremsti maður gestanna og eru Luciano Narsingh og Nathan Dyer á sitthvorum kantinum.

Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport 2.

Everton: Pickford, Kenny, Holgate, Williams, Martina, Gueye, Schneiderlin, Lennon, Rooney, Sigurðsson, Calvert-Lewin.

Swansea: Fabianski, Naughton, Fernandez, Mawson, Olsson, Fer, Roque, Carroll, Dyer, Bony, Narsingh.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner