Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 18. desember 2017 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gabriel Jesus valdi Man City af einni ástæðu
Gabrel Jesus hefur staðið sig feykilega vel á tímabilinu.
Gabrel Jesus hefur staðið sig feykilega vel á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Brasilíska ungstirnið Gabriel Jesus segist hafa valið að fara til Manchester City af einni ástæðu; Pep Guardiola.

Jesus segist hafa fengið tilboð frá mörgum félögum en vildi ekki nefna nein nöfn. Talið er að meðal þessara félaga séu Manchester United, Juventus og Mónakó.

„Ég hafði marga valkosti, ég hefði getað farið til annarra félaga á Englandi og ég hefði getað farið til heitari landa en Englands," sagði hinn tvítugi Jesus.

„Ég valdi Man City bara til að spila undir stjórn Pep Guardiola. Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer til lands þar sem er mjög kalt og ég tala ekki tungumálið. Það er erfitt að tjá sig og það getur orðið smá einmanalegt.

„Þegar ég var að ákveða hvert ég ætlaði að fara lét Guardiola mig vita að ég yrði mikilvægur partur af liðinu og framtíð félagsins. Ég heyrði það í röddinni hans að hann meinti það sem hann sagði, svo ég ákvað að grípa gæsina."

Athugasemdir
banner
banner
banner