Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. janúar 2018 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jay Rodriguez reiður út í Bong: Hann er að dreifa lygum
Gaetan Bong og Anthony Knockaert fagna saman.
Gaetan Bong og Anthony Knockaert fagna saman.
Mynd: Getty Images
Jay Rodriguez er ósáttur með hegðun Gaetan Bong undanfarna daga. Leikmennirnir mættust er West Brom lagði Brighton að velli um helgina, með tveimur mörkum gegn engu.

Bong ásakaði Rodriguez um kynþáttafordóma í leiknum og er enska knattspyrnusambandið að skoða málið.

„Okkur finnst ógeðslegt að Gaetan Bong sé að dreifa lygum og rógburði um Jay. Hann er að gera það á samfélagsmiðlum og í frönsku sjónvarpi," sagði Gary Mellor, talsmaður Jay Rodriguez.

„Við treystum því að knattspyrnusambandið höndli þetta mál og hreinsi nafn Jay."

Bong er frá Kamerún og hefur ekki haldið aftur að sér undanfarna daga. Hann hefur þó ekki viljað endurtaka orð Jay Rodriguez fyrir fjölmiðlum því þau séu of ljót.

„Hann sagði hluti sem ég ætla ekki að endurtaka, þetta eru hlutir sem má ekki segja. Þessi hegðun hans er ófyrirgefanleg," sagði Bong meðal annars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner