Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. febrúar 2018 20:37
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Arnór kom við sögu í sigri - Úrslitaleikur eftir viku
Mynd: Malmö
Gefle 0 - 3 Malmö
0-1 A. Jeremejeff ('18)
0-2 R. Bengtsson ('24)
0-3 C. Strandberg ('89)

Arnór Ingvi Traustason lék síðustu 20 mínúturnar er Malmö lagði Gefle að velli í sænska bikarnum.

Arnór kom inn þegar Malmö var 2-0 yfir og kom þriðja mark leiksins á lokamínútunum.

Malmö mætir Brommapojkarna í úrslitaleik um fyrsta sæti riðilsins næsta sunnudag. Bæði lið eru með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Það eru átta riðlar og kemst eitt lið upp úr hverjum.
Athugasemdir
banner