„Ég er alltaf sáttur þegar við vinnum leiki, frammistaðan var fín og það var erfitt að brjóta þá aftur."
Sagði Rúnar Páll þjálfar Stjörnunar eftir 2-1 sigur sinna manna gegn ÍBV fyrr í kvöld.
Sagði Rúnar Páll þjálfar Stjörnunar eftir 2-1 sigur sinna manna gegn ÍBV fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 ÍBV
„Við fengum opnanir á köntunum en náðum ekki að leggja lokahnútinn á margar sóknir þar sem við vorum að spila vel"
Stjarnan fékk fullt af færum til að gera út um leikinn miklu fyrr og var Rúnar ekkert orðinn hræddur um að lið hans væri að tapa stigum?
„Nei, nei aldrei hræddur um það, rythmin er með okkur núna og við höfðum trú á þessu. Við spilum í einhverjar 80 mínútur áður en við skoruðum mark, en nei ég var ekkert hræddur."
Stjarnan eru komnir tímabundið á toppinn og eftir erfiða byrjun hafa þeir ekki tapað í 8 leikjum í röð í deildinni.
„Jú jú ég er mjög áægður með það en eins og Óli Jó sagði það skiptir öllu máli að vera á toppnum á réttum tíma. Að vera á toppnum í lokaumferðinni skiptir öllu máli en við erum ekkert að fara fram úr okkur í því."
Sagði Rúnar Páll en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir