Einn vinsælasti tónlistarmaður heims, enski söngvarinn Ed Sheeran var á Íslandsvagninum í gær þegar liðið spilaði við Króatíu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Ísland mætti Króatíu og þurfti sigur til þess að fara áfram í 16-liða úrslitin. Það gekk hins vegar ekki alveg hjá strákunum okkar. Eftir hetjulega baráttu féllu þeir úr leik.
Ísland mætti Króatíu og þurfti sigur til þess að fara áfram í 16-liða úrslitin. Það gekk hins vegar ekki alveg hjá strákunum okkar. Eftir hetjulega baráttu féllu þeir úr leik.
Sheeran, sem gefið út hefur hvern smellinn á fætur öðrum, birti mynd af sér og félögum sínum á Instagram í gær þar sem hann er í íslenska landsliðsbúningnum.
Sheeran er með 23,6 milljón fylgjenda á Instagram.
Hér að neðan er myndin sem Sheeran birti í gær.
Við erum að tala um það að Ed Sheeran uppáhalds var team Iceland í kvöld, í treyju og allt 😍❤️ #hmruv #messan #edsheeran pic.twitter.com/g1Jk6nqkPe
— Harpa Melsteð (@harpamel) June 26, 2018
Athugasemdir