Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. apríl 2015 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: DM 
Mignolet: Hver einasti markvörður lendir í þessu
Mynd: Getty Images
Simon Mignolet var bekkjaður eftir slæmt gengi í vetur en endurheimti sæti sitt eftir að varamarkvörðurinn Brad Jones meiddist á læri.

Síðan þá hefur Mignolet staðið sig frábærlega og er öruggari en nokkurn tímann áður með byrjunarliðssæti sitt.

Mignolet útskýrði hvað það var sem gerði það að verkum að hann náði sér strax á strik eftir bekkjarsetuna.

,,Ég hélt mér jákvæðum gegnum bekkjarsetuna. Hver einasti markvörður lendir í þessu og það sem gerist er að maður verður andlega sterkari," sagði Mignolet við FourFourTwo.

,,Ég vil alltaf halda áfram að bæta mig. Þetta er mitt annað ár hjá Liverpool og ég hef lært margt. Ég er orðinn 27 ára en læri eitthvað nýtt á hverjum degi."

Mignolet er búinn að halda markinu hreinu síðustu sex útileiki í deildinni og er búinn að vera lykilmaður frá endurkomu sinni.
Athugasemdir
banner
banner