Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. september 2014 09:27
Magnús Már Einarsson
Javier Hernandez mættur í læknisskoðun hjá Real Madrid
Javier Hernandez er á leið til Spánar.
Javier Hernandez er á leið til Spánar.
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, framherji Manchester United, er mættur í læknisskoðun hjá Real Madrid.

Hernandez er á leið til Real Madrid á láni út tímabilið.

Radamel Falcao, framherji Monaco, hafði verið orðaður við Real Madrid undanfarna daga.

Falcao er hins vegar á leið til Manchester United á láni og í kjölfarið mun Hernandez fara til Real Madrid.

Hinn 26 ára gamli Hernandez hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Manchester United en hann hefur verið hjá félaginu síðan árið 2010.
Athugasemdir
banner
banner
banner