Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 01. september 2014 15:22
Elvar Geir Magnússon
Lassana Diarra fer ekki til QPR
Mynd: Getty Images
Lassana Diarra er ekki á leið til QPR þrátt fyrir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu um helgina.

Diarra var meðal áhorfenda á Loftus Road í 1-0 sigri gegn Sunderland á laugardag.

Harry Redknapp keypti Diarra á sínum tíma til Portsmouth en ekki náðist samkomulag við leikmanninn að þessu sinni.

Diarra leikur fyrir Lokomotiv Moskvu.

Redknapp vonast enn til að ganga frá kaupum á Sandro frá Tottenham og þá vill hann fá sóknarmanninn Jermain Defoe frá Toronto og Fabio Borini frá Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner