Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júlí 2015 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: 101gg | Guardian 
Chelsea og Arsenal berjast um Baba - Kostar 20 milljónir
Mynd: Getty Images
Chelsea, Arsenal og Manchester City eru sögð vera að berjast um varnarmanninn Baba Rahman, samkvæmt The Guardian og öðrum enskum fjölmiðlum.

Rahman kemur frá Gana og er leikmaður Augsburg í þýska boltanum. Rahman kom til Augsburg fyrir ári síðan og komst í byrjunarliðið á sínu fyrsta tímabili, aðeins 20 ára gamall.

Nú er Rahman nýorðinn 21 árs og á 11 landsleiki að baki fyrir Gana og er búinn að brjótast inn í landsliðið og orðinn fastamaður þar.

Rahman spilar sem vinstri bakvörður og kostar 20 milljónir evra, eða um 14 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner