Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. júlí 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
O'Driscoll ráðinn aðstoðarstjóri Liverpool (Staðfest)
Sean O'Driscoll.
Sean O'Driscoll.
Mynd: Getty Images
Sean O'Driscoll hefur verið ráðinn aðstoðarstjóri Liverpool en þetta var staðfest í morgun.

O'Driscoll hefur verið þjálfari U19 ára landsliðs Englendinga en áður var hann stjóri Bournemouth, Doncaster Rovers, Crawley Town, Nottingham Forest og Bristol City.

Pep Lijnders er einnig kominn í þjálfaraliðið hjá aðalliði Liverpool eftir að hafa áður þjálfað unglingalið hjá félaginu.

„Ég ákvað þessar ráðningar því að ég vil fara í nýja átt í þjálfuninni," sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpoo.

O'Driscoll og Lijnders fylla skarð Colin Pascoe og Mike Marsh sem voru reknir í sumar.
Athugasemdir
banner
banner