Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   þri 07. júlí 2015 22:32
Magnús Þór Jónsson
Ejub: Skiptir ekki miklu máli hvort við spilum heima eða úti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ejub þjálfari Víkings var sáttur við sína menn eftir öruggan 4-0 sigur á Fram í kvöld.

"Við vorum að spila vel allan tímann, héldum boltanum vel í fyrri hálfleik.  Skoruðum fallegt mark úr aukaspyrnu og eftir það var miklu auðveldara að halda boltanum og spila leikinn."

Víkingar linuðu aðeins tökin á leiknum og Framarar komust framar á völlinn en þá kom mark númer tvö sem kláraði í raun leikinn.

"Við áttum að skora í upphafi seinni hálfleiks og svo fannst mér Framarar komast inn í leikinn en ekki ná að skapa sér mikið en eftir annað markið fannst mér bara eitt lið á vellinum."

Víkingar stimpla sig stöðugt betur inn í toppbaráttuna en ætlar Ejub að styrkja liðið sitt í júlíglugganum?

"Já. Eins og allir vita þá erum við búnir að senda Spánverjann heim og Arnar Sveinn fer aftur út í ágúst.  Við ætlum að reyna að fá tvo leikmenn ef það er hægt. Tveir fara og þá kæmu tveir, en það þurfa að vera menn sem styrkja okkur."

Nánar er farið yfir leik kvöldsins í viðtalinu og prógrammið framundan hjá Víkingum.
Athugasemdir
banner
banner