Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 07. júlí 2015 22:07
Magnús Már Einarsson
Theódór: Vorum að laga á okkur hárið eða eitthvað
Theódór var ekki sáttur eftir tapið.
Theódór var ekki sáttur eftir tapið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er hundfúlt að tapa þar sem að taktíkin okkar gekk upp. Þær voru ekki að opna okkur mikið og við fengum á okkur þrjú aulamörk," sagði Theódór Sveinjónsson þjálfari Aftureldingar eftir 3-1 tap gegn Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Afturelding komst óvænt yfir gegn Íslandsmeisturunum í fyrri hálfleiknum í kvöld en Harpa Þorsteinsdóttir jafnaði tveimur mínútum síðar.

„Þetta var helvítis kæruleysi. Fyrstu mínúturnar eftir mark þarf maður að vera á tánum en við vorum það alls ekki. Við vorum sofandi, að laga á okkur hárið eða eitthvað."

Félagaskiptaglugginn opnar eftir viku og Afturelding gæti fengið liðsstyrk þá. „Gámurinn er í tollinum og allt í gangi. Ég er að safna pening. Ég stend fyrir utan Krónuna um helgina og safna fjárframlögum," sagði Theódór léttur.

„Að sjálfsögðu reynum við að styrkja hópinn. Við erum ekki búin að segja okkar síðasta. Við ætlum ekki að leggjast niður og grafa gröf. Við munum berjast til síðasta blóðdropa."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner