Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 07. október 2015 11:53
Elvar Geir Magnússon
Gylfi Sig: Var meira að skoða myndirnar þegar ég var lítill
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum búnir að setja okkur ný markmið og þau eru að vinna riðilinn," segir Gylfi Þór Sigurðsson. Landsliðið undirbýr sig fyrir leik gegn Lettlandi á Laugardalsvelli sem fram fer á laugardag en Ísland hefur þegar tryggt sér sæti í lokakeppni EM.

Ísland vann 3-0 útisigur í Riga í fyrri umferðinni en þær tölur gefa ekki rétta mynd af leiknum. Fæðingin var erfið en Gylfi braut einmitt ísinn í þeim leik.

„Mér fannst þetta einn erfiðasti leikurinn sem við höfum spilað í þessum riðli. Þeir eru með það marga til baka og verjast á 10-11 mönnum. Þeir hafa ekki skorað mikið en fá heldur ekki mörg á sig."

Komin er út bók um Gylfa sem er sérstaklega kjörin fyrir yngri fótboltaiðkendur. Gylfi segir gaman að geta gefið af sér til aðdáenda með þessum hætti.

„Mér finnst það mjög gaman. Það tók um eitt ár að gera þessa bók svo þetta hefur verið mikil vinnsla en mér fannst þetta mjög gaman. Þetta er lifandi bók og mikið um staðreyndir og öðruvísi hluti sem fólk veit ekki af," segir Gylfi.

„Þegar ég var lítill var ég meira að skoða myndirnar. Það er mikið af myndum í þessari bók. "

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner