Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. desember 2016 13:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo ætlar að leika eftir ferilinn
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo segist setja stefnuna á leiklistarferil eftir að fótboltaferlinum lýkur.

Hinn 31 árs gamli Ronaldo hefur áður sagt að hann spili jafnvel fótbolta til fertugs en hann gerði nýjan fimm ára samning við Real Madrid á dögunum.

Í viðtali við FourFourTwo var hann spurður út í það hvað muni taka við eftir fótboltann.

„Lífið snýst einungis um fótboltann," sagði Ronaldo í viðtalinu.

„Eftir að ég hætti að spila þá vil ég hins vegar fara í kvikmyndir."
Athugasemdir
banner
banner