Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. febrúar 2016 10:29
Magnús Már Einarsson
Dagur Sig velur handboltalið úr þýska fótbolta landsliðinu
Mynd: Twitter
Dagur Sigurðsson er mikið í þýskum fjölmiðlum þessa dagana eftir að hafa stýrt Þjóðverjum til sigurs á EM í handbolta.

Í gær fékk Dagur það verkefni að velja handboltalið úr leikmönnum þýska fótboltalandsliðsins.

Liðið má sjá hér til hliðar en Dagur er með Manuel Neuer í markinu.

Leroy Sane og Philipp Lahm yrðu hornamenn í liðinu og á línunni myndi Dagur hafa Ilkay Gundogan.

Mesut Özil myndi sjá um að vera leikstjórnandi og skyttur yrðu Thomas Muller og Julian Draxler.
Athugasemdir
banner