Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 10. október 2015 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Reynsluboltar enska landsliðsins fá frí frá lokaleiknum
Rooney sleppur við ferðalag til Litháen
Rooney sleppur við ferðalag til Litháen
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, Michael Carrick, James Milner, Gary Cahill og Joe Hart munu ekki ferðast með enska landsliðinu til Vilnius í Litháen á mánudag.

England er búið að tryggja sér efsta sætið í riðlinum en liðið hefur fullt hús stiga eftir níu leiki og hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í allri undankeppninni.

Carrick og Rooney voru fjarri góðu gamni í gærkvöldi þegar liðið vann 2-0 sigur á Eistlandi á Wembley en Milner, Cahill og Hart spiluðu allan leikinn.

Roy Hodgson staðfesti eftir leikinn að þessir fimm leikmenn myndu fara til félagsliða sinna en ekki er búið að tilkynna hvort aðrir leikmenn komi inn í hópinn í þeirra stað.
Athugasemdir
banner
banner