Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. febrúar 2016 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Steven Fletcher skoraði og lagði upp
Mynd: Marseille
Steven Fletcher spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Marseille fyrr í kvöld er liðið heimsótti D-deildarlið Trelissac í 16-liða úrslitum franska bikarsins.

Fletcher lagði fyrsta mark leiksins upp með laglegri hælsendingu og innsiglaði svo sigurinn á 87. mínútu.

Abou Diaby, fyrrverandi leikmaður Arsenal, var ónotaður varamaður á bekknum hjá Marseille.

Fyrsti leikur Fletcher fyrir sitt nýja félag var þegar hann kom inn af bekknum gegn Paris Saint-Germain um síðustu helgi.

Fletcher kom inná þegar Marseille var 2-1 undir á 80. mínútu en tókst ekki að koma í veg fyrir tapið.

Marseille er um miðja deild í franska boltanum, fjórum stigum frá meistaradeildarsæti og átta stigum frá fallsæti. PSG er á toppnum þar, með 24 stiga forskot á Monaco.

Hér fyrir neðan má sjá helstu atriði leiksins, en Fletcher leggur upp eftir rúmlega 40 sekúndur af myndbandinu og skorar í endan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner