Reiðir stuðningsmenn Manchester United létu gamminn geisa í vefsjónvarpsþættinum The United Stand eftir tap liðsins gegn Manchester City á Old Trafford í gær.
Herrera, Lukaku og Mourinho fengu allir að heyra það eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi en það borgar sig að vara við ljótu orðavali!
Einn trylltur stuðningsmaður lætur í sér heyra eftir rúmar þrjár mínútur í myndbandinu.
Ekkert virðist geta stöðvað Manchester City í leið þeirra að Englandsmeistaratitlinum og flestir sem í raun telja að mótinu sé í raun lokið í desember!
Athugasemdir