Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 12. nóvember 2016 20:19
Magnús Már Einarsson
Zagreb
Kári Árna: Erum með jafngott lið og þeir
Icelandair
Kári Árnason.
Kári Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru svolítið klaufaleg mörk sem við fáum á okkur. Þetta eru skot fyrir utan teig og við erum ekki vanir því að fá svona mörk á okkur," sagði Kári Árnason við Fótbolta.net eftir 2-0 tapið gegn Króötum í kvöld.

„Mér fannst við vera með þetta undir control mest allan leikinn. Fyrri hálfleikurinn var mjög fínn og yfir engu að kvarta. Við áttum góðar sóknir og vorum betri aðilinn. Í seinni hálfleik vantaði gæði í sendingum og þora að taka boltann fram á við."

„Það má ekki gleyma því að við erum að mæta góða liði. Það sýnir kannski hvað við erum langt komnir að við eigum að geta komið hingað og náð í stig. Mér fannst við eiga að gera það í dag. Þetta var þægilegur leikur að spila. Þeir sköpuðu lítið, það var helst í föstum leikatriðum á meðan að við fengum ekki alveg nógu mikið úr okkar föstu leikatriðum. Við vinnum þetta lið á heimavelli, það er ljóst."


Í upphafi síðari hálfleiks tóku miðverðirnir Kári og Ragnar Sigurðsson sprettinn fram völlinn eftir að miðjan var tekinn en boltinn kom þó ekki til þeirra.

„Við erum búnir að vinna svolítið með þetta í síðustu leikjum en boltinn kom ekki á réttan stað í þessum. Stundum gengur þetta ekki," sagði Kári.

Kári er bjartsýnn á að Ísland vinni Króatíu þegar liðin mætast á ný í júní. „Við ætlum að vinna þennan riðil. Við sjáum í þessum leik að við erum með alveg jafngott lið og þeir. Þó að þeir teljist vera eitt besta lið í heimi í dag þá eigum við í fullu tré við þá og mér finnst við eiga að geta unnið þetta lið."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner