Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
   þri 13. október 2015 21:56
Elvar Geir Magnússon
Aron Einar: Þetta er búið að vera æðislegt
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, var að mörgu leyti ánægður með spilamennsku liðsins í kvöld þó úrslitin hafi verið svekkjandi.

Lestu um leikinn: Tyrkland 1 -  0 Ísland

„Þetta var svekkjandi tap en aðalmálið var að laga það sem fór úrskeiðis gegn Lettum, mér fannst við gera það. Það var leiðinlegt að tapa þessu en það er erfitt að verjast svona aukaspyrnu sem syngur í „samúel" en mér fannst þetta aldrei vera aukaspyrna. Það þýðir ekki að pirra sig á þessu núna," sagði Aron eftir leikinn.

„Við vorum „solid" og þeir sköpuðu sér ekki mörg færi. Aftur á móti vorum við heldur ekki að skapa okkur mörg færi."

Ísland er komið í lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn.

„Ef við erum ekki sáttir eftir þessa undankeppni er eitthvað að. Við erum búnir að spila vel og erum að bæta okkur. Við getum verið virkilega stoltir og ég reikna með því að Íslendingar séu það. Þetta er búið að vera æðislegt."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner