Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
   mið 16. apríl 2014 22:18
Brynjar Ingi Erluson
Óli Þórðar: Við þurfum ekkert að grenja
Óli Þórðar
Óli Þórðar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings í Reykjavík, segist einstaklingsgæði hafa verið muninn á liðunum í kvöld er Breiðablik hafði betur í Fífunni gegn þeim í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld.

,,Þetta var jafn leikur en kannski að segja það sem réði úrslitum í leiknum er að þeir hafa meiri einstaklingsgæði heldur en við höfum. Það gekk allt nokkurn veginn en það sem við náum ekki að gera er að skapa sénsa til þess að klára leikinn," sagði Ólafur Þórðarson við Fótbolta.net í kvöld.

,,Við vorum mjög nálægt því nokkrum sinnum en það eru gæðin sem skipta máli í þessari stöðu og við höfðum það bara ekki í dag."

En er frammistaða liðsins í mótinu ekki ásættanleg.

,,Já, það má segja það. Auðvitað vill maður alltaf fara lengra en ég meina við vorum í efsta sæti í riðlinum ásamt Stjörnunni og dettum út fyrir einu af fjórum af sterkustu liðunum í deildinni en við þurfum ekkert að grenja."

,,Auðvitað vill maður meira. Það eru leikmenn sem að ættu að getað afkastað meiru en eru ekki í standi eins og er en vonandi verða þeir tilbúnir fyrir mót. Þetta er á ágætis áætlun og við eigum eftir að bæta við leikmönnum sem við eigum eftir að semja við."

,,Það eru einhverjir þarna sem eru ekki í sínu besta formi ennþá en ég vona nú að það muni gefa okkur meira þegar þeir koma inn. Við þurfum að bæta í framlínuna og miðjuna með Aroni Elís, það er sá kafli í leiknum í dag sem við erum slakastir í sem við erum að sækja leikmenn,"
sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner