Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. desember 2017 11:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Leicester og Crystal Palace: Okazaki bekkjaður
Okazaki er kominn á bekkinn þrátt fyrir að hafa skorað tvö í miðri viku.
Okazaki er kominn á bekkinn þrátt fyrir að hafa skorað tvö í miðri viku.
Mynd: Getty Images
Leicester og Crystal Palace hefja þennan laugardag fyrir okkur í enska boltanum.

Bæði lið eru á uppleið eftir slæma byrjun. Undir stjórn Frakkans Claude Puel er Leicester komið í Evrópubaráttu og Roy Hodgson hefur loksins rifið Palace upp af botninum.

Það verður áhugavert að sjá hvernig barátta þessara liða verður í dag, en byrjunarliðin hafa skilað sér.

Leicester gerir þrjár breytingar frá sigrinum gegn Southampton í miðri viku. Marc Albrighton, Demarai Gray og Vicente Iborra koma inn fyrir Christian Fuchs, Andy King og Shinji Okazaki.

Okazaki skoraði tvisvar gegn Southampton en er samt á bekknum hjá Leicester í dag.

Hjá gestunum koma Martin Kelly og James McArthur í byrjunarliðið fyrir Timothy Fosu-Mensah og Luka Milivojevic. Christian Benteke er fremsti maður Palace.

Byrjunarlið Leicester: Schmeichel, Simpson, Chilwell, Maguire, Morgan, Iborra, Ndidi, Gray, Albrighton, Mahrez, Vardy.
(Varamenn: Hamer, Iheanacho, King, Dragovic, Okazaki, Ulloa, Fuchs)

Byrjunarlið Crystal Palace: Speroni, Tomkins, Dann, Schlupp, Kelly, McArthur, Cabaye, Loftus-Cheek, Zaha, Townsend, Benteke.
(Varamenn: Hennessey, Van Aanholt, Chung-yong, Souare, Sako, Wan-Bissaka, Riedewald)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner