Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. apríl 2014 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Fjarvera Ronaldo hvatti okkur áfram
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, var ánægðu með 1-2 sigur liðsins á Barcelona í spænska konungsbikarnum í gær.

Madrídingar fögnuðu bikarsigri í spænska konungsbikarnum í gær en Angel Di Maria kom Madrídingum yfir áður en Marc Bartra jafnaði metin. Gareth Bale tryggði svo Real Madrid sigurinn með góðu marki undir lokin.

,Við áttum þennan titil skilið. Við pressuðum hátt upp völlinn og nýttum skyndisóknirnar," sagði Ancelotti.

,,Við spiluðum virkilega vel og allir leikmenn lögðu hart að sér, svo það verður að hrósa þeim."

,,Fjarvera Cristiano hvatti leikmennina áfram. Ég lét þá leggja harðar að sér, þeir stóðu sig allir vel. Maður verður að spila sem lið til þess að vinna Barcelona og við gerðum það,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner