Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 17. október 2017 17:07
Elvar Geir Magnússon
Ívar Örn í Val (Staðfest)
Ívar Örn þegar hann var tilkynntur sem nýr leikmaður Vals rétt í þessu.
Ívar Örn þegar hann var tilkynntur sem nýr leikmaður Vals rétt í þessu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Örn Jónsson skrifaði rétt í þessu undir samning við Íslandsmeistara Vals.

Ívar, sem er 23 ára, hefur verið í stóru hlutverki hjá Víkingum þar sem hann hefur að mestu leikið sem vinstri bakvörður. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 2013 þegar hann kom frá HK.

Samningur Ívars við Víkinga rann út í gær en hann er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals á tveimur dögum en í gær kom Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni.

Ívar gerði þriggja ára samning við Valsmenn.

Viðtal við Ívar kemur inn á Fótbolta.net á eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner