Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. desember 2014 10:00
Elvar Geir Magnússon
Efnilegur leikmaður lamaðist í bílslysi
Changwe Kalale var talinn afar efnilegur fótboltamaður.
Changwe Kalale var talinn afar efnilegur fótboltamaður.
Mynd: Getty Images
Opinberað hefur verið að miðjumaðurinn Changwe Kalale hafi orðið fyrir mænuskaða í afar sorglegu bílslysi og sé nú lamaður fyrir neðan mitti.

Kalale var leikmaður U17 landsliðs Sambíu og átti framtíðina fyrir sér sem varnarsinnaður miðjumaður.

Kalale lék fyrir Zesco United í heimalandinu en rúta á vegum félagsins lenti í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Bílstjóri rútunnar og tveir aðrir létust í slysinu.

Varnarmaðurinn Nyambe Mulenga og markvörðurinn Satchmo Chakawa slösuðust einnig í árekstrinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner