Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. mars 2018 20:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Góðir sigrar hjá Selfossi og Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tveir leikir fóru fram í B-deild kvenna í Lengjubikarnum þar sem Fylkir komst á toppinn með frábærum sigri gegn KR í Egilshöll.

Freyja Viðarsdóttir kom KR yfir en Marija Radojicic jafnaði skömmu síðar og var staðan jöfn í hálfleik.

Margrét Björg Ástvaldsdóttir kom Fylki yfir í síðari hálfleik og gerði Thelma Lóa Hermannsdóttir út um leikinn með tveimur mörkum á sautján mínútum.

Birna Kristín Eiríksdóttir gerði síðasta mark leiksins undir lokin og glæsilegur 5-1 sigur Fylkis staðreynd.

Selfoss, sem tapaði 5-1 fyrir Fylki í fyrstu umferð, lagði HK/Víking að velli og er með þrjú stig eftir tvær umferðir.

KR 1 - 5 Fylkir
1-0 Freyja Viðarsdóttir ('18)
1-1 Marija Radojicic ('24)
1-2 Margrét Björg Ástvaldsdóttir ('62)
1-3 Thelma Lóa Hermannsdóttir ('71)
1-4 Thelma Lóa Hermannsdóttir ('87)
1-5 Birna Kristín Eiríksdóttir ('90)

HK/Víkingur 1 - 3 Selfoss
0-1 Markaskorara vantar ('22)
0-2 Markaskorara vantar ('36)
1-2 Markaskorara vantar ('49)
1-3 Markaskorara vantar ('75)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner