Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. júlí 2017 19:25
Magnús Már Einarsson
EM: Austurríki lagði Sviss í riðli Íslands
Austurríki fagnar sigrinum.
Austurríki fagnar sigrinum.
Mynd: Getty Images
Austurríki 1 - 0 Sviss
1-0 Nina Burger ('15)
Rautt spjald: Rahel Kiwic ('60)

Austurríki lagði Sviss 1-0 í C-riðlinum á EM kvenna í Hollandi í dag. Þessi lið eru með Íslandi í riðli á mótinu.

Nina Burger skoraði eina mark leiksins á 15. mínútu og tryggði Austurríki sigur í sínum fyrsta leik á EM í sögunni.

Úrslitin koma nokkuð á óvart en Sviss er í 17. sæti á heimslistanum á meðan Austurríki er í 24. sæti.

Rahel Kiwic, leikmaður Sviss, fékk að líta rauða spjaldið í dag og verður því í banni gegn Íslandi á laugardag. Um var að ræða fyrsta rauða spjaldið á EM kvenna síðan árið 2009.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner