Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 19. apríl 2017 13:36
Magnús Már Einarsson
Southampton ætlar að reyna að kaupa Gylfa í sumar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í dag að Gylfi Þór Sigurðsson sé á óskalista Southampton fyrir sumarið.

Hinn 27 ára gamli Gylfi hefur verið frábær með Swansea á þessu tímabili en hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2020.

Gylfi hefur skorað níu mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og lagt upp níu.

Ljóst er að mörg félög verða í baráttunni um Gylfa í sumar en hann var meðal annars orðaður við Everton á dögunum.

Samkvæmt frétt Sky er sænski miðvörðurinn Pontus Jansson einnig á óskalista Southampton fyrir sumarið en hann er í lykilhlutverki hjá Leeds.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner