Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. apríl 2015 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Draumur Zouma að vinna Ballon d'Or verðlaunin
Mynd: Getty Images
Kurt Zouma, varnarmaður Chelsea á Englandi, segist dreyma um að vinna Ballon d'Or verðlaunin á ferlinum.

Zouma, sem er 20 ára gamall, hefur leikið ellefu leiki með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en hann var magnaður gegn Manchester United í 1-0 sigri liðsins um helgina.

Hann segist hafa háleit markmið en hann vill feta í fótspor ítalska varnarmannsins, Fabio Cannavaro, sem vann verðlaunin sem besti knattspyrnumaður heims eftir magnaða frammistöðu hans með Juventus og ítalska landsliðinu árið 2006.

,,Það er draumur minn að vinna þessi verðlaun," sagði Zouma.

Athugasemdir
banner