Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. apríl 2015 19:24
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: ESPN 
Liverpool tók Balotelli út í kosningunni um leikmann ársins
Hvers á Mario Balotelli að gjalda?
Hvers á Mario Balotelli að gjalda?
Mynd: Getty Images
Liverpool fjarlægði í dag nafn Mario Balotelli í kosningu á vef félagsins um leikmann ársins hjá félaginu.

Mikil umræða hefur verið um kosninguna undanfarna daga eftir að stuðningsmenn Manchester United tóku upp á því að kjósa Balotelli aftur og aftur og ætluðu að tryggja honum nafnbótina hjá félaginu.

Stuðningsmenn Arsenal bættust svo í hópinn en Balotelli hefur verið afleitur hjá Liverpool á tímabilinu og varla náð að skora mörk fyrir félagið.

Af ótta við að þurfa að útnefna Balotelli leikmann ársins var nafn hans svo tekið út í dag þó leikmenn eins og Jordan Rossiter, Jordan Williams og Danny Ward sem spiluðu ekkert á tímabilinu hafi verið inni.

Síðar í dag breyttist staðan svo aftur, búið var að setja Ballotelli inn, en þar er nafn Balotelli vitlaust stafað.
Athugasemdir
banner
banner