Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. október 2016 18:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Rudi Garcia nýr stjóri Marseille (Staðfest)
Rudi Garcia
Rudi Garcia
Mynd: Getty Images
Rudi Garcia er nýr þjálfari Marseille en hann þjálfaði áður Roma.

Garcia kemur í stað Franck Passi og fyrsti leikur hans verður gegn PSG á sunnudag.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við Marseille og stýrir sinni fyrstu æfingu á föstudag.

Tíðindin koma aðeins þrem dögum eftir að Frank McCourt, bandarískur viðskiptamaður gekk frá kaupum á franska félaginu.

Garcia gerði Lille af tvöföldum meisturum árið 2011 en hann var rekinn frá Roma í janúar en hann stýrði ítalska félaginu í 2. sæti, tvö ár í röð.
Athugasemdir
banner