Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. janúar 2017 12:28
Kristófer Kristjánsson
Tímabilið búið hjá Angelo Ogbonna
Angelo Ogbonna verður ekki meira með á tímabilinu
Angelo Ogbonna verður ekki meira með á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Angelo Ogbonna, varnarmaður West Ham, verður ekki meira með á tímabilinu en hann þarf að fara í aðgerð á hné.

Þessi ítalski landsliðsmaður hefur spilað 19 af 22 leikjum West Ham í ensku úrvalsdeildinni hingað til en eftir að félagið keypti hafsentinn Jose Fonte frá Southampton hefur Slaven Bilic, þjálfari West Ham, ákveðið að senda Ogbonna í aðgerð.

„Ég verð að hrósa Angelo Ogbonna vegna þess að hann hefur spilað allt tímabilið meiddur," sagði Bilic við Sky Sports.

„Hann þarf að fara í aðgerð á hné til að vera alveg heill heilsu og hann átti að fara fyrir nokkrum vikum en við báðum hann um að spila áfram."
Athugasemdir
banner
banner