„Fyrir ekki nema 2-3 vikum var ég mjög viss um að ég myndi fara, og vildi hreinlega fara, en nú er ég alveg hættur við það. Nú fer ég ekki neitt,“ segir Birkir Bjarnason, landsliðsmaður og leikmaður Aston Villa, í viðtali við Morgunblaðið í dag.
Birkir var á dögunum orðaður við endurkomu til Ítalíu en félög eins og Spal og Parma höfðu sýnt honum áhuga.
Undanfarnar vikur hefur Birkir hins vegar spilað frábærlega með Aston Villa og unnið sér inn sæti í liðinu.
Um helgina fékk Birkir góða dóma og mikið hrós frá stuðningsmönnum eftir 3-1 sigur Aston Villa á Barnsley.
„Ég er búinn að spila núna fjóra síðustu leiki, en fyrir það hafði ég ekki spilað í mjög langan tíma. Þetta lítur mjög vel út núna. Það hefur gengið ótrúlega vel, bæði hjá mér og liðinu, og ég er bara verulega bjartsýnn,“ segir Birkir við Morgunblaðið.
Umboðsmaður Birkis var byrjaður að ræða við ítölk félög en nú er ljóst að ekkert verður af félagaskiptum.
Þess í stað mun Birkir hjálpa Aston Villa í toppbaráttunni í Champiponship deildinni en liðið er í 4. sæti, tveimur stigum á eftir Derby sem er í 2. sætinu.
Athugasemdir