Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 22. júlí 2016 13:10
Magnús Már Einarsson
Bruce að hætta hjá Hull?
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Hull, er í viðræðum við félagið um framtíð sína en hann gæti verið á förum.

Bruce leiddi Hull aftur upp í ensku úrvalsdeildina í vor en hann hefur verið að íhuga framtíð sína hjá félaginu.

Hull hefur verið til sölu frá því árið 2014 og óvissa hefur verið í kringum það.

Bruce ku vera orðinn þreyttur á óvissunni auk þess sem lítið hefur gengið upp á leikmannamarkaðinum hjá Hull í sumar.

Hann er því á fundi með forráðamönnum félagsins núna og möguleiki er á að hann segi upp störfum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner