Jafntefli hjá Frökkum og Austurríki
Frakkland 1-1 Austurríki
0-1 Lisa Makas ('27)
1-1 Amandine Henry ('51)
0-1 Lisa Makas ('27)
1-1 Amandine Henry ('51)
Frakkland og Austurríki skildu jöfn þegar annari umferð C-riðils EM kvenna lauk í kvöld.
Úrslitin þýða að íslenska landsliðið sem tapaði fyrir Sviss fyrr í dag er úr leik. Frakkland og Austurríki eru nú með fjögur stig í 1. og 2. sæti þegar öll liðin eiga eftir að leika einn leik í riðlinum.
Það var Lisa Makas sem kom Austurríki yfir þegar 27. mínútur voru liðnar af leiknum.
Amandine Henry jafnaði metin fyrir Frakkland í upphafi seinni hálfleiks.
Hvorugu liðinu tókst að skora meira og 1-1 jafntefli niðurstaðan. Bæði liðin í ansi góðum málum fyrir lokaumferðina í riðlinum.
— Haukur Harðarson (@HaukurHardarson) July 22, 2017
Stelpurnar okkar úr leik út af úrslitum 🇫🇷 vs 🇦🇹 Ótrúlega svekkjandi dagur. Spilað upp á stoltið í Rotterdam. Þær eiga meira skilið #dottir
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) July 22, 2017
Ást mín á Frökkum er ekkert að aukast, hvar var vitagjöfin núna?
— Þórður Helgi Þórðar (@Doddilitli) July 22, 2017
Athugasemdir