,,Ég var ósátt með fyrri hálfleikinn hjá mér svo ég tók mig á og reyndi að spila minn leik og róa mig aðeins niður. Ég var svolítið æst í byrjun," sagði Írunn Þorbjörg Aradóttir leikmaður Stjörnunnar sem var mikilvæg í liði Stjörnunnar í 3-0 sigri á Aftureldingu í kvöld en með því tryggði Stjarnan sér Íslandsmeistaratitilinn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 0 Afturelding
,,Ég er ágætlega sátt með sumarið, markmiðið var að skora fleiri mörk en í fyrra....." sagði Írunn en var svo rokin upp á verðlaunapall til að taka á móti bikarnum.
Athugasemdir