Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   fim 22. september 2016 11:28
Magnús Már Einarsson
Adebayor með sígarettu og viskí í samningaviðræðum
Lyon ákvað að semja ekki
Vildi viskí ofan í kaffið.
Vildi viskí ofan í kaffið.
Mynd: Getty Images
Emmanuel Adebayor er án félags þessa dagana en hann mætti til Frakklands í síðustu viku til að ræða við Bruno Genesio, þjálfara Lyon.

Lyon ákvað að semja ekki við Adebayor á endanum en Genesio segist hafa verið hissa eftir fund sinn með leikmanninum.

„Við vorum með pláss í hópnum fyrir Manu svo ég ákvað að hitta hann yfir kaffibolla í Lyon," sagði Genesio.

„Það kom mér á óvart þegar hann bað um skot af viskí ofan í kaffið. Hann var líka með sígarettu í munninum."

Genesio segir að þetta hafi verið slæm byrjun á viðræðunum en á endanum ákvað Lyon að semja ekki við Adebayor.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner