Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. október 2016 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Valencia gegn Barcelona í beinni
Börsungar hafa átt misjöfnu gengi að fagna í upphafi tímabils
Börsungar hafa átt misjöfnu gengi að fagna í upphafi tímabils
Mynd: Getty Images
Það eru fjórir leikir á dagsskrá í spænsku úrvalsdeildinni í dag, en einn þeirra stendur ofar meðal jafningja. Níunda umferð spænsku deildarinnar hófst í gær og hún heldur áfram í dag, hvað mun gerast?

Landsmenn geta byrjað daginn rólega hvað varðar spænska boltann. Fyrsti leikur dagsins er á milli Espanyol og Eibar á heimavelli fyrrnefnda liðsins og er sá leikur örugglega ekki mikið spennandi í augum margra.

Næsti leikur ætti þó að vekja áhuga hjá fleirum, þá mætast Valencia og Barcelona í stórleik þessarar umferðar. Bæði lið hafa valdið ákveðnum vonbrigðum í byrjun tímabils og ætla sér eflaust ekkert annað en sigur í þessum leik.

Dagurinn klárast svo á Spáni með tveimur rólegum leikjum seinni partinn. Real Sociedad mætir Alaves klukkan 16:30 og Granada tekur á móti Sporting Gijon stuttu eftir að áðurnefndum leik lýkur.

Laugardagur 22. október
11:00 Espanyol - Eibar
14:15 Valencia - Barcelona (Stöð 2 Sport 4)
16:30 Real Sociedad - Alaves
18:45 Granada - Sporting Gijon
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 25 15 5 5 44 22 +22 50
2 FK Krasnodar 25 14 7 4 41 25 +16 49
3 Dinamo 25 12 8 5 42 33 +9 44
4 Lokomotiv 25 10 11 4 42 34 +8 41
5 Kr. Sovetov 25 11 6 8 43 35 +8 39
6 Spartak 25 11 6 8 34 29 +5 39
7 CSKA 25 9 11 5 44 33 +11 38
8 Rostov 25 10 7 8 37 38 -1 37
9 Rubin 25 10 6 9 23 30 -7 36
10 Nizhnyi Novgorod 25 8 4 13 24 33 -9 28
11 Orenburg 25 6 8 11 28 33 -5 26
12 Fakel 25 6 8 11 19 28 -9 26
13 Akhmat Groznyi 25 7 5 13 24 37 -13 26
14 Ural 25 6 6 13 24 39 -15 24
15 Baltica 25 6 5 14 25 31 -6 23
16 Sochi 25 4 7 14 26 40 -14 19
Athugasemdir
banner
banner