Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 23. janúar 2017 23:30
Kristófer Kristjánsson
Mustafi segir Arsenal geta barist um titilinn til loka leiktíðar
Shkodran Mustafi
Shkodran Mustafi
Mynd: Getty Images
Shkodran Mustafi segir Arsenal geta barist um titilinn allt til loka leiktíðar.

Þjóðverjinn skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í 2-1 sigrinum á Burnley í gær. Hann kom Arsenal þá í 1-0 en sigurmarkið kom frá Alexis Sanchez á áttundu mínutu uppbótartímans.

Þrátt fyrir að Chelsea sé með átta stiga forskot á toppi deildarinnar, segir Mustafi að Arsenal eigi enn möguleika á að verða meistari.

„Arsenal á möguleika á að verða meistari og við munum ekki gefa neitt upp á bátinn fyrr en tímabilið er búið. Við höfum mikla trú á okkur."

„Síðan ég kom til félagsins höfum við skorað nokkur mörk á síðustu sekúndunum og stunudm höfum við lent undir og komið til baka. Það sýnir hvað við erum andlega sterkir," sagði Mustafi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner