Bakvörðurinn Darko Bulatovic hefur yfirgefið herbúðir KA og verður ekki með liðinu í sumar.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir KA en Bulatovic var mjög öflugur með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir KA en Bulatovic var mjög öflugur með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.
Bulatovic spilaði sem vinstri bakvörður hjá KA en hann getur leyst margar stöður á vellinum.
Hann hefur skrifað undir samning við Vozdovac sem hafnaði í sjöunda sæti í serbnesku deildinni á síðasta tímabili.
KA endaði í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra en er spáð ofar í sumar í ótímabærri spá útvarpsþáttarins Fótbolti.net.
KA
Komnir:
Cristian Martinez frá Víkingi Ó.
Hallgrímur Jónasson frá Lyngby
Sæþór Olgeirsson frá Völsungi
Farnir:
Almarr Ormarsson í Fjölni
Bjarki Þór Viðarsson í Þór
Davíð Rúnar Bjarnason í Magna
Emil Lyng til Dundee
Srdjan Rajkovic hættur
Darko Bulatovic til Serbíu
Athugasemdir