Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. apríl 2014 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin - Leikur dagsins: Hörkuleikur á Bernabeu
Verður Cristiano Ronaldo með?
Verður Cristiano Ronaldo með?
Mynd: Getty Images
Fyrri undanúrslitaleikur Real Madrid og Bayern München í Meistaradeild Evrópu fer fram á Santiago Bernabeu í kvöld en ljóst er að um hörkuleik er að ræða.

Madrídingar hafa staðið sig gríðarlega vel undir stjórn Carlo Ancelotti frá því hann tók við liðinu en það varð spænskur bikarmeistari á dögunum sem og liðið er í bullandi titilbaráttu á Spáni.

Bayern er þá búið að vinna þýska titilinn og komið í úrslitaleik þýska bikarsins en liðið henti Manchester United úr leik í 8-liða úrslitum.

Leikur dagsins:
18:45 Real Madrid - Bayern München
Athugasemdir
banner
banner