Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 23. október 2016 17:26
Jóhann Ingi Hafþórsson
Þýskaland: Aron Jó og félagar steinlágu fyrir nýliðunum
Nabil Bentaleb fagnar með fyndnum kall.
Nabil Bentaleb fagnar með fyndnum kall.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Annars vegar fór Schalke illa með Mainz og unnu öruggan 3-0 sigur. Hins vegar tapaði Aron Jóhannsson og félagar í Werder Bremen, illa fyrir Leipzig, 3-1.

Nabil Bentaleb, fyrrum miðjumaður Tottenham, skoraði tvö mörk fyrir Schalke í leiknum gegn Mainz.

Naby Keita skoraði einnig tvö mörk fyrir Leipzig gegn Werder en Serge Gnabry, fyrrum leikmaður Arsenal, skoraði mark Werder Bremen. Aron Jóhannsson kom inná þegar 20 mínútur voru eftir.

Schalke 04 3 - 0 Mainz
1-0 Nabil Bentaleb ('23 )
2-0 Max Meyer ('48 )
3-0 Nabil Bentaleb ('61 )

RB Leipzig 3 - 1 Werder
1-0 Naby Keita ('42 )
2-0 Naby Keita ('74 )
2-1 Serge Gnabry ('76 )
3-1 Davie Selke ('90 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner