FC Astana 2 - 3 Villarreal
1-0 J. Kabananga ('22)
1-1 Raba ('39)
1-2 C. Bakambu ('65)
1-3 C. Bakambu ('83)
2-3 P. Twumasi ('88)
1-0 J. Kabananga ('22)
1-1 Raba ('39)
1-2 C. Bakambu ('65)
1-3 C. Bakambu ('83)
2-3 P. Twumasi ('88)
Villarreal heimsótti FC Astana í toppslag A-riðils Evrópudeildarinnar og ljóst var að félagið gat tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum með sigri.
Heimamenn komust þó yfir í fyrri hálfleik en liðin gengu jöfn til búningsklefa í hálfleik eftir jöfnunarmark Raba.
Cedric Bakambu var hleypt inná völlinn snemma í síðari hálfleik og skoraði hann tvennu á tæpum hálftíma og gerði út um leikinn, þrátt fyrir að heimamenn hafi klórað í bakkann með marki undir lokin.
Viðar Örn Kjartansson og félagar í Maccabi Tel Aviv eiga heimaleik við Slavia Prag í kvöld en þeir eru úr leik. Ísraelunum tókst ekki að skora mark í þremur tapleikjum og einu jafntefli.
Athugasemdir