Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. apríl 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Oliver dæmir úrslitaleik enska bikarsins
Michael Oliver.
Michael Oliver.
Mynd: Getty Images
Michael Oliver verður dómari þegar Manchester United mætir Chelsea í úrslitaleik í enska bikarnum laugardaginn 19. maí.

Þetta var tilkynnt í dag en aðstoðarmenn Oliver í leiknum verða þeir Lee Betts og Ian Hussin.

Lee Mason er síðan fjórði dómari og hann kemur inn ef eitthvað kemur upp á.

Oliver varð fyrir mikilli gagnrýni fyrr í mánuðinum þegar hann dæmdi vítaspyrnu undir lok leiks hjá Real Madrid og Juventus. Cristiano Ronaldo skoraði úr spyrnunni og skaut Real áfram í undanúrslitin.
Athugasemdir
banner
banner
banner