Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. maí 2015 19:00
Elvar Geir Magnússon
Wenger: Viljum berjast um titilinn næst
Arsene Wenger.
Arsene Wenger.
Mynd: Getty Images
Theo Walcott skoraði þrennu þegar Arsenal vann 4-1 sigur gegn West Bromwich Albion í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

„Við byrjuðum tímabilið hægt en urðum sterkari og sterkari eftir því sem á leið," segir stjórinn Arsene Wenger en Arsenal hafnaði í þriðja sæti.

„Við höfum tryggt okkur beint sæti í Meistaradeildinni en viljum meira. Við viljum berjast um titilinn næst. Vonandi verðum við heppnari þegar kemur að meiðslum."

„Fyrsta markmið er samt að vinna Aston Villa í úrslitum FA-bikarsins um næstu helgi."
Athugasemdir
banner
banner
banner