Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. maí 2017 10:20
Hafliði Breiðfjörð
Sami Hyypia áritar í Jóa útherja í dag
Sami Hyypia í leik með Liverpool.
Sami Hyypia í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Sami Hyypia fyrrverandi miðvörður Liverpool verður í fótboltaversluninni Jóa útherja í dag milli 15:30 - 17:00. Verslunin er í Ármúla 36.

Hyypia er kominn hingað til lands og verður heiðursgestur á árshátíð Liverpoolklúbbsins í kvöld þar sem 300 stuðningsmenn koma saman og skemmta sér.

Félagsmönnum verður boðið að hitta kappann fyrir árshátíðina en Hyypia verður í verslun Jóa Útherja á miðvikudag frá kl 15:30 til 17:00 að árita treyjur, myndir eða hvaðeina sem fólk vill. Hann mun árita einn hlut á mann en auk þess fá allir mynd af sér með kappanum.

Það verða útprentaðar myndir á staðnum ef fólk gleymir heima.

Hyypia mætir svo í Kórinn kl 19 á miðvikudagskvöldið þar sem árshátíð stuðningsmanna Liverpool fer fram. Það eru örfáir miðar eftir og því magnað kvöld framundan. Miða má kaupa á midi.is
Athugasemdir
banner
banner