Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. september 2017 14:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Inter lagði Genoa - Taarabt fékk rautt
Taarabt í leiknum gegn Inter.
Taarabt í leiknum gegn Inter.
Mynd: Getty Images
Það voru fjórir leikir að klárast í ítölsku úrvalsdeildinni.

Inter frá Mílanó sá nágranna sína í AC Milan tapa fyrr í dag og þeir ætluðu ekki að gera slíkt hið sama.

Þeir fengu Genoa í heimsókn og þar nægði eitt mark fyrir Inter til að vinna leikinn. Markið skoraði Danilo D'Ambrosio á 87. mínútu, en stuttu síðar fékk Adel Taarabt, fyrrum leikmaður QPR, rauða spjaldið.

Inter er í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig, tveimur stigum á eftir Juventus og Napoli sem eru í efstu tveimur sætunum.

Í hinum leikjunum sem voru að klárast vann Chievo gegn Cagliari, Crotone lagði Benevento og Ciro Immobile skoraði tvö þegar hans menn í Lazio kláruðu Hellas Verona á útivelli.

Hér að neðan eru úrslit og markaskorarar.

Cagliari 0 - 2 Chievo
0-1 Roberto Inglese ('53 )
0-2 Mariusz Stepinski ('90 )
Rautt spjald: Fabio Pisacane, Cagliari ('83)

Crotone 2 - 0 Benevento
1-0 Rolando Mandragora ('43 )
2-0 Marcus Rohden ('57 )
2-0 Nicolas Viola ('86 , Misnotað víti)

Verona 0 - 3 Lazio
0-1 Ciro Immobile ('24 , víti)
0-2 Ciro Immobile ('40 )
0-3 Adam Marusic ('60 )

Inter 1 - 0 Genoa
1-0 Danilo D'Ambrosio ('87 )
Rautt spjald:Adel Taarabt, Genoa ('90)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner