Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. september 2016 17:28
Magnús Már Einarsson
Dion Acoff á förum frá Þrótti
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Dion Acoff er á förum frá Þrótti eftir tímabilið en þetta kemur fram á 433.is.

Kantmaðurinn fljóti var ekki með Þrótti í 2-2 jafnteflinu gegn Fylki í dag. Eftir leikinn staðfesti Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, að Dion sé á förum.

„Dion [Acoff] verður ekki hér áfram. Við fengum hann fyrir tveimur árum og hann hefur þróast mikið og vill reyna fyrir sér erlendis," sagði Gregg við 433.is.

Dion ætlar að fara til erlendra félaga á reynslu og reyna fyrir sér.

Í fyrra átti Dion stóran þátt í að Þróttur fór upp í Pepsi-deildina en hann var valinn í lið ársins í 1. deild eftir góða frammistöðu þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner