Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. apríl 2018 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil, Wilshere og Cech klárir í slaginn gegn Atletico
Özil er búinn að jafna sig af meiðslum.
Özil er búinn að jafna sig af meiðslum.
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, Petr Cech og Jack Wilshere eru allir klárir í slaginn fyrir leik Arsenal og Atletico Madrid í kvöld.

Miðjumennirnir Özil og Wilshere og markvörðurinn Cech misstu allir af 4-1 sigrinum gegn West Ham um liðna helgi vegna smávægilegra meiðsla. Þeir eru búnir að jafna sig fyrir kvöldið.

Henrikh Mkhitaryan er enn frá en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vonast til að hann spili rullu í seinni leiknum eftir viku. Miðjumaðurinn Mohamed Elneny spilar líklega ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa meiðst gegn West Ham. Hann ætti þó að vera klár með Egyptalandi á HM í sumar.

Þá má Pierre-Emerickh Aubameyang ekki spila leikinn út af furðulegri reglu sem nú er búið að fella úr gildi.

Leikurinn í kvöld hefst 19:05 og er sýndur beint á Stöð Sport 2.

Sjá einnig:
Evrópudeildin í dag - Eini möguleiki Wenger
Diego Costa óvænt í hópnum sem mætir Arsenal
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner